-=Hafrún=-

01.08.2007 19:10:40 / Butterfly

Köben!!!

Jæja allir kettlingarnir eru farnir og búið að taka köttinn úr sambandi... þannig engir fleiri kettlingar...

En já... VIÐ ERUM AÐ FARA TIL KÖBEN Á MORGUN!!!!! vúhú!!! og verðum til 18.ág.... vá ég er ekki alveg að geta beðið sko!! við förum með fjölskyldunni hans Bjögga.. Mömmu hans og pabba, Kristínu systur hans og Þórði kærastanum hennar, Jóa bróðir hans, Hákoni bróðir hans og Petru kærustunni hans!!!

Ég, Bjöggi, Kristín og Þórður förum 2 dögum á undan hinum, fljúgum til Köben og verðum þar í 3 nætur og keyrum svo til Horsens þar sem hin verða...

Aldrei að vita nema að við tökum einhver road trip og svo auðvitað verður VERSLAÐ og farið í TÍVOLÍIÐ!!!! úfffff.... hlakkar til!!!!!

En allavega ég er að fara að borða grill mat!!! þannig heyrumstumst!!! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 08:55:24 / Butterfly

Kettlingur!

Litlum kisustrák vantar heimili... hann er ótrúlega skemmtilegur og kelinn... hann er kassavanur og er líka vanur hundum... ;) Reyni að koma með mynd en hann er ALVEG grábröndóttur... geðveikt flottur!! erum að fara til Reykjavíkur kvöldið 31.ágúst... getum tekið hann með :) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 20:19:59 / Butterfly

fotos!

Einhverjarmyndir komnar inn á http://www.dropshots.com/hafrun  kettlingarnir og fleira ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 18:41:01 / Butterfly

Rvk!

Við erum að fara til Reykjavíkur ámorgun!!! ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 19:03:20 / Butterfly

Amma og afi!

Þá erum við orðin amma og afi... aftur... ;) það eru komnir 5 brjálæðislega sætir kettlingar!! sá fyrsti kom um hálf 1 og síðasti um 5 leytið!! :) :) :) :) :)

ég ætla að fara að gera eitthvað sniðugt! Adios amigos! :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 22:18:48 / Butterfly

Hárkolla???

Á einhver Marilyn Monroe hárkollu til að lána mér????

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 17:51:57 / Butterfly

Veik :(

Ég er veik!! og mér leiðist....

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 09:19:59 / Butterfly

...

Ætlaði að henda hérna inn nokkrum línum, er búin að gera mig klára fyrir vinnuna og er bara eitthvað að dunda mér...

hmmm... ég hef nú ekki mikið að segja!

ég fór í klippingu um daginn.. voða nice að hafa hárgreiðslustofu bara á sama stað og snyrtistofuna hehe... og ég lét klippa á mig topp, þveran topp :) og er bara mjög ánægð með útkomuna sko! ;)

Bjöggi var að kaupa sér crossara í gær!! þannig að ég á örugglega ekki eftir að sjá hann mikið næstu mánuðina :( hann og fleiri eru svo að spá í að fara á klaustur og keppa þegar það verður... kannski maður fái sér bara hjól líka.. hehe..

Anna Lilja er að koma um helgina!! vá hvað það verður gaman!! :) hlakka geggjað til að fá hana!

en ég verð að fara að drulla mér..

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 20:56:04 / Butterfly

Jóga :)

Jæja.. hvað segið þið þá?
Orðið soldið síðan ég skrifaði síðast.. bara mikið að gera og svona.. er alltaf að vinna frá 10-18 stundum lengur og annan hvern laugardag er ég er vinna frá 10-14 og stundum lengur ef að það koma einhverjir hópar í dekur eða pottinn eða eitthvað þannig...

Þar síðustu helgi.. held ég.. kom Sigurjón á Akureyri.. hann lagði soldið seint af stað á fimmtudeginum þannig að hann kom um 3 um nóttina og hringdi og vakti Bjögga til að komast inn og svona.. ég var ekki að nenna að vakna.. en svo bara kemur Anna Lilja og vekur mig.. hehe.. hún var búin að segja okkur að hún kæmist ekki þannig að ég var ekkert að búast við henni.. ekkert smá gaman!! hehe.. og það var bara rosalega gaman þessa helgi!! elduðum góðan mat, fórum í pottinn í Hár og Heilsu, kíktum aðiens út og bara já.. geggjað gaman að fá þau!!

Svo var ég núna að kaupa mér dvd disk á www.femin.is Jóga með Guðjóni Bergmann.. ætla að reyna að gera einhvað hérna heima.. ætla svo að reyna að fara í fit pilates bráðlega, reyna að komast í smá form :) ekki veitti af.. ;)

Svo erum við búin að vera geðveikt dugleg að elda í nýja eldhúsinu.. og ég er ekki frá því að við séum örugglega búin að elda oftar á u.þ.b. mánuði heldur en á 2 árum í Hlégerðinu hehe.. neinei kannski ekki alveg... við erum allavega búin að vera dugleg að prófa eitthvað nýtt og svona.. snilldar síða sem ég fann www.matseld.is mæli alveg hiklaust með henni!!

Mamma og pabbi eru út á Kúbu núna... vá hvað það væri NICE!! verð að viðurkenna það að ég öfunda þau soldið... MIKIÐ! :)

En jæja ég ætla að fara að hætt, er svo slök eftir jógaæfingarnar mínar ;) hehe...

Hafið það gott og endilega skrifið í commentin eða gestabókina eða eitthvað :)

see´ya!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 21:13:16 / Butterfly

Valentínusardagur! :)

Sælt veri fólkið :) það er lítið búið að gerast hér... maður er bara að vinnafrá 10 til 6, sofa, borða..... lítið sem maður gerir annað.. en það er fínt, allt að komast í rútínu aftur! ;)

Það er bara rosalega fínt í vinnunni... er´búin að fá miklu meira að gera.. mest lit + plokk svona í byrjun.. held að ég sé að verða pro í því ;) er líka byrjuð á fótsnyrtingu, andlitsnudd og maska, er að fara að gera slatta af vaxi á morgun... er líka að læra fullt nýtt og svona.. bara  gaman ;)

En í dag var Valentínusardagurinn ;) ég ætlaði að koma Bjögga smá á óvart og kom með smá gjöf heim úr vinnunni.. geðveikt gott ilmvatn :) Versace... brjálæðislega góð lykt af því!! og þá kom hann mér bara ennþá meira á óvart, lét renna í bað fyrir mig og eldaði bajones skinku, brúnaðar kartöflur, rauðvínssósu nammmmmminammmmmmmmm!!!!!! geðveikt gott :)

En ég ætla að horfa á America's next top model!!!

Bæjó!!!! ;) :) ;) :) ;) :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 18:27:44 / Butterfly

...

Jæja... þá er dagur númer 2 í vinnunni búinn.. :) og það gekk bara vel að vakna og gekk líka bara vel í vinnunni... fyrstu dagana er ég bara svona að fylgjast með, læra að bóka og svona ýmislegt.. gerði samt 2 lit og plokk í dag... en þessir tveir dagar hafa verið soldið lengi að líða en það fer allt að breytast þegar byrjað er að bóka á mig og ég fer að gera eitthvað... spennó :)

annars er lítið annars búið að gerast... bara að koma okkur fyrir og svona...

En kötturinn er búinn að vera eitthvað hræddur eða eitthvað.. hún hefur alltaf gert þarfir sínar úti og ekkert vesen með hana en núna er hún já.. að gera þær inni.. ekki sniðugt... hún meig á einn fata kassann og svoleiðis skemmtilegt... vona bara að þetta fari að hætta, er ekki að meika að hafa kattarsand inni... en langaði ykkur ekki að vita þetta... hehe... girnilegt ;)

En ég ætla að fara að hætta... minni á myndasíðuna http://www.dropshots.com/hafrun

bæjó! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 22:06:24 / Butterfly

Myndir!!!

Komnar einhverjar myndir af íbúðinni á http://www.dropshots.com/hafrun endilega kíkið! :)

Var að elda í FYRSTA SKIPTIÐ í eldhúsinu.. mjög góðan Chili kjúkling sem ég fann á http://www.matseld.is snilldar síða... og þetta gekk bara rosalega vel og maturinn rosalega góður :)

Ég er að fara að byrja að vinna á morgun... kíkti aðeins á stofuna í dag að hitta stelpurnar sem ég er að fara að vinna með... rosa fínar...

Wish me luck!!!! :)

ætla að fara að lúlla.. vakna um 8 leytið á morgun.. þannig að maður þarf að fara snemma að sofa þar sem að maður er búinn að vera í "fríi" allt of lengi og ekki þurft að vakna snemma... hehe...

Gúd næt!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 19:11:50 / Butterfly

Heeeeeelllllllóóóóó! :)

Jæja... þá erum við komin til Akureyrar ;) komum um 2 leytið í nótt... vorum svo spennt að við gátum ekkert sofnað þannig að við settum svona stærstu hlutina á sinn stað! sofnuðum um 5... hehe... erum svo búin að vera á fullu í allan dag að taka upp úr kössum, fara í rúmfatalagerinn og byko... við erum fyrstu sem erum í þessari íbúð þannig að það eru engir naglar í veggjunum eða neitt... málingin ennþá svona smá mjúk, það er svo nýbúið að mála hana :) en mig langaði bara að deila þessu með ykkur.. svo koma myndir inn bráðum.. :)

ætla að halda áfram að ráðastá kassana :) bæjó!


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 23:43:41 / Butterfly

Akureyri!!! ;)

Hellú!!! :)

How're you doin'? Hvað segið þið þá? langt síðan maður hefur látið heyra frá sér.. maður er bara búin að vera á fullu að pakka, leita að íbúð á akureyri og já... við erum allavega komin á nýjan bíl (bara byrja alveg frá "grunni" sko :) ) myndir af nýja "barninu" á www.dropshots.com/hafrun maður voða montinn af honum ;) og við erum búin að pakka ÖLLU og Bjöggi er í þessum "töluðum" orðum að keyra búslóðinni á Akuryeri í NÝJU íbúðina okkar!! og þá meina ég að það er ennþá verið að klára hana.. geðveikt flott.. koma myndir af henni seinna... þetta er allt að smella saman, Bjöggi kominn með vinnu, ég líka.. og bara já..

Ég og Anna Lilja vorum að klára að þrífa íbúðina og ég er frekar þreytt þannig að þetta er kannski allt óskiljanlegt sem að ég ber að skrifa hérna en so what! :) bara aðeins að láta heyra í mér... allavega folkens ætla að sötra 1 öl og fara svo að sofa... good næt!!! :* :* :* :* :* :*


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 15:51:32 / Butterfly

!!!!

GLEÐILEG JÓL!! :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Fyrir stelpurnar!
Myndir!!